Hómer=)

Sælt veri fólkið!

03.01.2008 14:23:52 / astahomer

Árið 2007

Jæja þá mun árið 2007 vera á bak og burt og lítið sem ég get gert til að breyta því

Árið byrjaði líkt og mörg önnur nokkuð vel og maður var bjartsýnn á að ekkert gæti farið úrskeiðis þetta árið, en annað kom á daginn.

Á þessu ári var nokkuð mikið um rangar beygjur en ég vil meina að það sé best að læra af mistökum þó maður þurfi oftar en ekki að gera sömu mistökin oftar en einu sinni til að læra af þeim!

Ef árinu mínu væri líkt við manneskju sem væri að aka hringveginn held ég að manneskjan hefði ansi oft keyrt útaf þó en þess að slasast! Þó hafi einhverjir kaflar leiðarinnar verið greiðfærir en aðrir nánast ófærir fyrir lítinn hvítann Polo!

  • Prófin komu í lok janúar og mér til mikillar furðu náði ég öllu þannig ég og Bekks héldum uppá það með því að fara suður og horfa á Sigga í X-factor!
  • Man ekki mikið hvað gerðist næst en Valdís fór til Indlands og því var ég eina örverpið í foreldrahúsum.
  • Árshátíð Pennans haldin fyrir sunnan með miklum látum! Góð skemmtun!
  • Páskarnir gengu í garð og skellti ég mér á Blönduós með Rakel Bryndísi á ball, gisti svo í Hofsós og bragðaði örlítið á páskaeggjum áður en lagt var af stað heimleiðis.
  • Fór til Liverpool með normönnum og Birni Tómasi sem er beggja blands;)
  • Varð lögráða kvikindi og tók prófin í Ma kláraði 2 bekk með sóma að mér fannst
  • Noregsfólkið lét loks sjá sig á klakanum enda var Rebekka að útskrifast, mikið stuð mikið gaman!
  • Ég fór til Noregs og vann í 2 vikur mér til skemmtunar og sá ljósið þarna úti
  • Kom heim og vann eins og brjálæðingur því ég eyddi aleigunni úti, vann þangað til eftir versló en a þessum tíma var tekið mikið af brynjurúntum og kaffihúsaferðum...
  • Einnig stóð skemmtanalíf Akureyrar undir nafni þetta sumarið..
  • Eftir Versló fór ég út á Festival með krökkunum rosa rosalega gaman! Hápunktur sumarsins af margra mati! Fór svo til Rebekku og var síðan hjá Peter í Osló síðustu dagana úti
  • Kom heim og vann og vann og vann..... nýtti tímann til að hitta vini en þó aðallega vinnuvini og var oftar en ekki kíkt á djamm, kaffi hús eða í brynju slúður rúnta!
  • Ásta mín Þórðar hvarf af landi í leit að ævintýrum
  • Byrjaði í 3 bekk... með skólaleiða frá fyrsta degi... eða svona!
  • Ljósið slokknaði!
  • Fleiri ljós kviknuðu en ekkert var með nægjilega sterka peru að mínu mati....
  • Ég vann og þjálfaði reyndi að vera á bjargi þangað til allt fór út og suður og ég var send í aðgerð á hnéinu....
  • Þurfti dveljast heima fyrir í næstum viku og mátti ekki vinna í 2 þetta voru erfiðar vikur að mínu mati..
  • Svo kom árshátíð MA mikið fjör
  • Svo mátti ég vinna og vann framað jólum, jólin voru með öðru sniði bara 4 heima að opna pakka og borða. Þó gaman!:)

 

Þetta er árið mitt í hnotskurn! þó ekki sé meira sagt


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 22:43:16 / astahomer

þökkum fyrir að þetta séu þau en ekki við!

ég ætla að láta hugann reika ótrúlegt hvað ein hugsun leiðir til annarrar! :)

  • árshátíðin MA var í gær það var mjög gaman dansaði og hafði það gott
  • Flosi Ólafs er yndislegur hef sjaldan hlegið jafn mikið á stuttum tíma eins og á árshátíðinni í gær.... Snillingur algjör snúlli!
  • hefði samt alveg verið til að hafa náð að fara í myndatöku með fleirum
  • mig langar einmitt lika í kærasta til að faraí myndatöku með
  • það er líka kalt úti og mig langar að hafa einhvern hjá mér til að kúra með og horfa á mynd....
  • ég sakna Rebekku og Níelsar
  • mig langar í nammi
  • spes hvað ég tengi nammi við rebekku og níels kannski bara við vanabyggðin
  • mér er kalt á tánum
  • ég held ég sé að verða þunglynd að meiga ekki vinna.... hef ekki mátt vinna í 10 daga....
  • held ég sé vinnualki
  • er það gott eða slæmt?
  • er að fara til útlandi í janúar mig hlakkar ekkert smá til
  • en kvíður líka fyrir að hitta fólk sem ég hef ekki haft mikil samskipti við
  • en hverju breytir það svo sem
  • ég þarf að vakna snemma á morgun
  • ég þarf líka að læra á morgun
  • þýsku munnlegtpróf á mánudag....
  • SA vann Björninn áðan það var stuð, vinir sagga standa fyrir sínu í stúkunni og strákarnir stóðu sig vel á ísnum... var samt frekar grófur leikur en það var bara gaman!
ég er farin hugurinn reikar í Super að kaupa nammi!

» 9 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 18:41:58 / astahomer

jæja

  • hjartað hamast í brjósti mér....
  • lungun þenjast út
  • sársaukinn er gífurlegur
  • verkjapillur eru hetjur dagsins
  • ég svíf

aðgerðin semsagt yfirstaðin, allt gekk þokkalega eitthvað var klippt annað límt!

ég er kannski ekki beint sátt en þó þetta er yfirstaðið! sársaukinn verður það vonandi fljótlega líka!

ásta er farin að sofa aftur! 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 22:36:02 / astahomer

ég held maður ætti að róa sig

VÁ blogg ég að blogga! úfff 

Jæja helgin afstaðin og vel það enda þriðjudagurinn á enda...

ég komst að því að ég ætla að taka því rólega á næstunni... mér lýst ekkert lengur á þetta! :)

enda vinna næstu helgi skólinn að kæfa mann, vinna með og svo næsta miðvikudag verður lagt af stað suður.... strax um 9 að ég held enda þarf ég að mæta í eitt stykki aðgerð um 12 leytið mætti segja að það votti fyrir smá stressi... 

en siggi og unnur svo ljúf að leyfa mér að gista svo ég reyni ekki að fljúa heim skökk útaf svæfingu og uppdópuð af verkjalyfjum...  

kem svo heim á fimmtudaginn og má þá ekki vinna í 2 vikur úff hvað á ég að gera ég er þannig manneskja að ég veit ekki hvað frí er...! og ég þarf að liggja og sitja mikið í 2 vikur allavega má ekki labba mikið um...

úfff en já ég er farin héðan að reyna að semja eitt stykki dans fyrir krakkana mína á skautunum:)

seinna melir! 


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 20:27:12 / astahomer

10sept

Ein mynd segir meira en 1000 orð

þess vegna ætla ég ekki að setja inn mynd! 


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 20:01:29 / astahomer

28júlí

Undur og stórmerki gerast og þar er því tími til komin að segja frá slíku!

Simpson myndin var frumsýnd í gær, nördið ég fór ásamt Villa og Ástu minni;) það var stuð, væntingar voru mjög miklar og var fannst mér þetta bara mjög góð mynd í heildina hlakka óendanlega til að kaupa hana á dvd sjæs!

Og að öðrum fréttum 1 mánuður í dag síðan 28 júní var! hvílíkar fréttir sem ég ber ykkur börnin góð:)

Góðar stundir...


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 15:56:04 / astahomer

Grati næst!

ufff eg vard ad setja inn sma linu

Eg sit a Cafe Jabes i Kristiansand i Noregi og er ad vinna tar tessa dagana rosa stud... hingad kemur fullt af folki og madur fær ad kynnast morgum. Eg atti spjall med einum vini okkar her i gærkveldi!

Hann heitir John og er fra Rwanda hann hafdi mikinn ahuga a ad sja hvadan eg væri tannig eg for ad syna honum myndir fra Islandi sem eg atti i tolvunni, svo bad eg hann ad syna mer hvadan hann væri hann fletti uppa google earth og skrifadi Rwanda og eg bara ufff buin ad læra helling um Rwanda i skolanum og hver herfur ekki sed myndina hotel Rwanda....? Hann syndi mer hvadan hann var og var ad synamer hvar husid sitt væri svo for eg eitthvad ad spyrja uti bæinn og ta bara ja her bjo helmingur fjolskyldu minnar en husin voru flest oll jofnud vid jordu. Hann kom til Noregs til ad fa vinnu og tess hattar byrja nytt lif, nu a hann engan ad fyrir utan vini sina her, tvi fjolskylda hans og vinir lifdu ekki tjodarmordid af.

Eg var svo klokk tegar hann var ad segja mer tetta, nu vaknar hann fyrir half 6 a daginn og er i nokkrum vinnum hann er rosalega anægdur og segir ad Gud hafi leytt sig hingad tetta se hans vilji! Finnst hreint otrulegt hvad folk sem hefur lent i einhverju virkilega atakalegu getur verid takklatt fyrir tad litla sem tad hefur!

Vard bara ad deila tessu med einhverjum

knus Asta!


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 22:22:48 / astahomer

Látnir þvo bíla!

Satt að segja þá held ég að ég ætli hreinlega að leggja þessa síðu niður í bili... skrif munu byrja aftur ef eitthvað ýskiggilega/ískyggilega spennandi gerist í lífi mínu.....

En já þessi fyrirsögn greip huga minn þegar ég var að lesa blað... Látnir þvo bíla, Sérstakt vona satt að segja að þegar ég fell frá þá taki ekki bílaþvottur við:)

en yfir og út melir 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 11:57:18 / astahomer

3 af 9 búin

  • jæja 1/3 búin 2/3 eftir próf eftir klukkutíma...
  • finn ekkert ódýrt hótel í Oslo...
  • skil ekki hvað ég er að gera með að blogga
  • ætla að nærast fyrir skriflega dönsku
  • Vel áminnst fór í vittlaust sögupróf.. vel gert Ásta vel gert!
  • Vona að Róbert sé í góðu skapi og leyfi mér að ná..
  • Annars leiðinlegt blogg, call 0207362820... if not now when?
  • jeij
  • takk og lov!

Ásta Út!


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 20:58:38 / astahomer

Kvennréttindi

Okey!

Í dag og síðustu daga hef ég verið að lesa yndislega sögubók að nafni Nýjir tímar... mæli með henni.. eða nei nei

Í bókinni er talað um konur sem eru að berjast fyrir réttindum sínum, vilja fá að mennta sig þó ekki sé nema læra að lesa, fá að kjósa, fá að láta sýnar skoðanir í ljós!

Satt að segja finnst mér það allt gott og blessað alveg frábært hjá þeim, ég sæi mig í anda í dag ef ég hefði ekki farið í skóla, lært heima hvernig ég ætti að halda heimili og fengi engu um minn hag ráðið!

Þegar ég hafði spáð í það hvað ég hef það gott núna þá spáði ég aðeins í það hvað kvennréttindafélög eru með á skránni hjá sér núna... það sem kom mér efst í huga þegar þessar blessaðar konur vildu fá konu í umferðaljósin! HALLÓ! hvað er í gangi, hvað ættu karlarnir þá að koma grenjandi til okkar eftir nokkur ár og heimta að fá þessu breytt ég bara spyr?                   Hver sagði líka endilega að þetta væri kall á ljósunum. Ekki geng ég í pilsi alladaga þannig þetta gæti bara vel verið líkan af mér!

Satt að segja finnst mér kvennmenn mættu aðeins fara að róa sig í þessum málum þó ég sé alveg sammála að mér finnst ég eiga rétt á sömu launum fyrir sömu vinnu!

Að sinni

Ásta Huxuður! 


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 14:59:38 / astahomer

fullvaxið kvikindi!

ÉÉg á afmæli í dag

Ég á afmæli í dag 

Ég á afmæli ég sjálf ég á afmæli í dag!

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 19:59:51 / astahomer

Próf nálgast

Prófin eru að koma er hægt að segja eitthvað meira...9 próf á 9 dögum... sjæsa en eins og maður segir þá eru prófin hátíð þar sem nemendur fá að uppskera erfiði vetrarins:D

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

En góð systkina mynd í lokin;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 20:48:14 / astahomer

Ég dansa víst

Jæja miner damer og herrer....

Mér varð það á að skoða mig um á veraldarvefnum og fann þetta myndband af mér að dansa... haha hvaða snillingur gerði þetta elsku 2H?

http://www.carmex-kiss.de/index.php?meintanz=263657071573 

Segi svo fólk að ég sé ekki hæfileikarík...;)

klem


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 22:41:43 / astahomer

Ný færsla?

úfff Hjartað komið niður í maga, maginn uppí háls ég held ég þurfi að æla...

þarna koma það, einhverjar óskiljanlegar setningar, mér lýður eins og hálvita föstum í gervi aula!

Afhverju að segja þetta! Ert þú hálviti? Já er svarið

En það verður ekki aftur snúið núna ég held mig langi til að gera hina óútreiknanlegustu hlutu, mér líður þannig.... ég held það sé stórt fiðrildi í maganum mínum!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 13:40:50 / astahomer

komin ut

ja Asta litla er i Asker!

Allar budir lokadar i Oslo i dag tannig vid erum bara ad slappa af og lata timann lyda:) mjog kosy... trodum okkur inna mommu Bjørn Tòmasar, kannski ad madur kiki sma i budir i fyrramalid tvi vid leggjum ekki af stad til Liverpool fyrr en um 2 leytid a morgun:)

En goda skemmtun heima fyrir, Asta farin ut ì sòlbad med àreydanlega litlum sem engum àrangri ;)

Àsta farin à vit Ævintyranna:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15